Ég á afmæli í dag

Já loksins loksins, eftir að hafa beðið í heilt ár eftir þessum afmælisdegi er hann nú loksins runninn upp.  Af hverju er ég búin að bíða.... jújú.. nú fæ ég LOKSINS að eiga "dirty sex" í heilt ár.  Það er nú ekki amalegt. 

Dagurinn er annars búin að vera mjög góður.  Ég mætti í morgun í vinnuna með kræsingar sem vel hefðu dugað fyrir heilan her.  Veit ekki alveg hvurslags átvögl ég hélt að væru að vinna með mér.  En við borðum þá bara afganginn á morgun.  

 Vöfflupartý á laugardaginn fyrir fjölskylduna og hugsanlegt afmælisdjamm með Hildi Sól á laugardaginn.

Annars er dagurinn bara búinn að vera góður og ég þakka Hildi Sól og Einari kærlega fyrir pakkann sem ég fékk í dag frá þeim og svo auðvitað fá allir eitt stórt TAKK fyrir allar kveðjurnar í dag.

 

Svo er ég búin að panta miða fyrir okkur Unnu Siggu á 20 ára afmælistónleika með Sálinni þann 14 mars í Laugardagshöllinni.  VÚHÚ.... can't wait....  Djö skal verða gaman þá.  Svo já það verður næsta ferð til Reykjavíkur og í þetta sinn verður Jónas greyjið skilinn eftir til að passa húsið ;)

 

 

Skjáumst síðar 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanný

Til hamingju með afmæli í gær.

njóttu "dirty sex"  ársins

Fanný , 8.2.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Ársæll Níelsson

Til hamingju með afmælið

(betra seint en aldrei)

Krummi biður að heilsa :)

Ársæll Níelsson, 10.2.2008 kl. 07:38

3 identicon

Sammála Ársæli, betra seint en aldrei. Til hamingju með afmælið um daginn:)

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband